mánudagur, janúar 22, 2007

sma update

Verður maður ekki að tjá sig reglulega. Eg luma svosem ekki á neinu krassandi. Er byrjuð að vinna, rosalega gaman i vinnuni og gengur bara vel. Skemmtilegt folk sem ég er að vinna með. En ég er soddans ljóska og er buin að gera nokkur ljóskuprik í vinnuni. En ég hlæ bara af þvi ekkert annað hægt að gera. Ég er komin með bíla fráhvarfseinkenni, bíllinn enþá bilaður.

Komandi vika verður spennandi margt að gerast á mörgum sviðum. segi betur frá þvi þegar vikan er buin. það er einhvern vegin svo margt í gangi að maður verður bara að brosa og hafa gaman af lífinu, þó að það sé líka margt sem fær mann til að gráta. En hláturinn lengir lífið..

Svo til að hafa allt sluður á hreinu.. Þá er ég ekki ofrísk,ekki með kærasta, ekki að fara að gifta mig, ekki að kaupa mér annan hund og ekki í leynilegu ástarsambandi með vinkonu minni..

jæja hætt þessu bulli i bili. ja og þið sem kikið hingað reglulega kvittið endilega fyrir ykkur. Maður á alltaf að kyssa kokkinn bless á mínu heimili..;)

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Svamps æði

Svampur Sveinsson er æði.. bara stórkostlegur. Hér á bæ var keypt myndin með honum og tok við algjört Svamps æði. Þættirnir voru i sjonvarpinu þegar Raggi var lítill og alltaf sat ég limd við þættina og öskraði úr hlatri. En myndin er algjört æði. Húmorin bakvið þetta er svo súr. Ég er ekki alveg viss um að synir minir séu að fatta hann. En þeim finnst hann samt æði líka. Svampur er semsagt svampur sem býr í bikini bottnum í hafinu, hann á gælu snigil sem heitir kjartann, hann byr i ananas husi, á vin sem er krossfiskur og heitir Pétur. á einum stað i myndini kemur David Hasselhoff þeim til bjargar og syndir með þá á baywatch brókini,,hihihihi. Og ekki má gleyma upphafslaginu sem er algjör snilld, á einum stað er sungið ef þú hefur gaman að biluðu bulli,hoppaðu þá eins og fiskur í rugli. hvernig eru annars fiskar i rugli ég bara spyr..hahahaaha. En ég skora alla a að horfa a þessa mynd, hún er mjög fyndin..

free web hit counter